Kokteilar í sérflokki
Hannaðir til að hraða þjónustu, tryggja stöðug gæði og viðhalda sömu upplifun og nýblandaður kokteill.
Fyrir sjö árum ákváðum við að breyta þeirri ímynd að forblandaðir kokteilar væru síðri kostur. Við þróuðum lausn í samstarfi með Liberation Cocktails byggða á ferskum og vandlega völdum hráefnum víðsvegar að úr heiminum eins og Brasilísku lime, ástaraldini frá Ekvador og öðrum úrvalshráefnum sem gefa kokteilunum mikla dýpt og jafnvægi. Vínandinn kemur frá handverksframleiðendum og blöndunin er framkvæmd með það að markmiði að erfitt sé að greina mun á kokteil á krana og kokteil frá barþjóni á staðnum.
Síðan 2019 höfum við þjónustað krár, bari, baðlón, veitingahús, hótel, viðburði, árshátíðir, fyrirtæki og tónleika um allt land.
Kokteilar á krana skila hagræðingu í rekstri, hraðari þjónustu og einfaldari innkaupum.
vín og bubblur á krana
Gæða vín og ferskleiki fram á síðasta dropa. VitaBona vín koma í 20L kútum sem gerir þér kleift að bjóða gestum fjölbreytt úrval af víni á krana. Birgðargeymsla og rýrnun er ekki lengur áhyggjuefni, ekkert tap á gæðum eða ferskleika þar sem að loftþéttar umbúðir koma í veg fyrir að súrefni eða ljós hafi áhrif á gæði vínsins.
kokteilar á krana eru okkar kranastél
VitaBona kokteilar koma forblandaðir í 20L kútum og eru hannaðir af barþjónum fyrir barþjóna til að spara tíma, ná betri verðstýringu og tryggja stöðuga og hraða afgreiðslu á vinsælustu kokteilunum. Lausnin gerir barnum kleift að einbeita sér að sérhæfðari drykkjum og upplifun gesta, án þess að fórna gæðum í grunnúrvalinu.
Kranastél Vitabona skila minni aðfangakostnaði, engri rýrnun, hraðari þjónustu og þar með aukinni sölu, og stöðugum gæðum, óháð því hver er á vakt.
óáfengur RASPBERRY MOJITO 0% er Alvöru kokteill
Sér hannaður fyrir Íslenskan markað og einn söluhæsti drykkur Sky Lagoon breytti væntingum til óáfengra kokteila. Safarík hindber, ferskt lime og náttúruleg mynta skapa lifandi og ferska upplifun sem stendur jafnfætis hefðbundnum kokteilum.
Hannað fyrir staði sem vilja bjóða 0% kokteil sem gefur ekkert eftir.
0% getur líka verið í sérflokki.
kokteilar í dósum
Sama gæðahugsun, en í einfaldara og sveigjanlegra formi. VitaBona kokteilar í dósum eru framleiddir eftir sömu uppskriftum og kranastélin, þróaðir af barþjónum og byggðir á hágæða hráefnum og vínanda frá handverksframleiðendum.
Dósirnar eru sérstaklega hannaðar fyrir minni staði sem þurfa ekki dælukerfi en vilja bjóða upp á úrval hágæða kokteila. Hentar einstaklega vel þar sem sala er árstíðabundin eða þétt yfir takmarkaðan tíma, til dæmis yfir sumartímann. Lausnin einfaldar rekstur þar sem oft er unnið með tilfallandi starfsfólk og þjálfunartími þarf að vera lágmarkaður.
Fullkomið fyrir golfklúbba, minni veitingastaði, útisvæði, viðburði og aðra staði sem vilja stöðug gæði, hraða afgreiðslu og einfaldari rekstur, án uppsetningar, rýrnunar eða flókinna ferla.